04. janúar 2007 klukkan 08:08
31. desember 2006 klukkan 21:20
Það eru bara áramót í kvöld... svakalega er tíminn fljótur að líða.
Við stelpurnar ætlum sko aldeilis að sletta úr klaufunum svona einu sinni... ætlum bara ekki að ákveða neitt bara láta kvöldið ganga... þannig að ef að þið vitið um opið party endilega láta vita ! annars er líka bara gaman að vera tvær að drekka (höfum gert það með Einar dauðan í næsta herbergi). Lillan mín er ekkert hrædd við flugeldana, það er bara eins og hún heyri ekkert í þeim... ég held að hún hafi lifað í fyrra lífi sem einhver úr Seinni heimstyrjöldinni.
...þarf að fara að gera mig til...
Kv Sandra
P.S. ég skal taka fullt af myndum af kvöldinu og setja inn á síðuna (",)
22. desember 2006 klukkan 00:13
ertu ekki að djóka hvað það er vont veður. ég ætlaði að vera svaka dugleg og labba í ljós en svo þegar ég ætlaðii að llabba til baka var bara kominn stormur, svo stóð ég á miðri miklubrautinni og var að bíða eftir græna kallinum og ég get svo svarið það að ég þurfti að halda mér í skilti svo ég myndi ekki fjúka í burtu, svo þurfti ég að labba upp götuna mína á móti vindi og það var sko ekkert grín, ég var farin að spá í hvort að einhver myndi taka eftir mér ef það myndi líða yfir mig annars myndi ég bara frjósa í snjónum... ;/ en ég komst allaveganna heim með herkjum.... ég ætla ekki að labba úti á næstunni og ég hvet ykkur til að gera slíkt hið sama.
Sandra Sig
P.S. það meiga allir commenta þótt að þeir þekkii bara margréti.... ég er ekkert það leiðinleg !!!
27. nóvember 2006 klukkan 22:17
Perla vann keppnina !!!!!!
ég er ekki alveg að ná þessu, litli bróðir minn Davíð er bara orðinn frægur (hann er sammt ekki nema ári yngri en ég) hljómsveitinn hans var að keppa í battle of the bands á íslandi og fyrst þeir unnu fara þeir til London að keppa í aðalkeppninni þar sem fulltrúar allra landa koma saman og keppa um titilinn !!!
Ég óska strákunum endalaust til hamingju (",) !!!!!!!!!!!!!!!
fyrir þá sem vilja að þá getiði hér hlustað á fyrsta lagið þeirra sem var að byrja í spilun á útvarpsstöðvunum:
http://profile.myspace.com/index.cfm?fuseaction=user.viewprofile&friendID=123446599

Kveðja Sandra Sig
22. nóvember 2006 klukkan 17:40
ég stal þessu hjá Guðrúnu Kjartans:) 1. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér eitthversstaðar, myndirðu halda að ég væri á föstu eða lausu?
2.Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?
3.Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?
4.Hvernig stelpa er ég, og í hvaða týpu flokkarðu mig?
5.Hvaða lag minnir þig á mig?
6.Hverjum öðrum er röddin mín líkust?
7.Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig?
8.Hversu vel telurðu þig þekkja mig?
9.Hvernig stráka fíla ég?
10.Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?
11.Hvað er mest einkennandi við mig?
12.Hvaða búðir elska ég að fara í?
13.Lokaorð til mín?
allir að svara og hananú ('',)
21. nóvember 2006 klukkan 22:05
MIG LANGAR TIL ÚTLANDA NÚÚÚNAAAAA!!!
16. nóvember 2006 klukkan 18:08
ohh afhverju þarf ég að vera svona mikill hræðslupúki, okay ég er að gera ritgerð um Leonardo Da Vinci og á að halda fyrirlestur eða kynna verkefnið mitt(djös rugl að vera pína mann í eh sem maður vill ekki) , en okay ég er alveg langt komin með það og búin að gera ágætis slideshowe og svona og er á leiðinni í tíma , bara aðeins of sein og stend fyrir utan stofuna og einfaldlega þori ekki að labba inn:/ ... ég held alltaf að öllum finnst þetta ekkert mál og svo er ég að skíta á mig úr stressi, en það er bara best að ljúka svona af og manni líður vel eftir á þ.e.a.s ef manni gengur vel , góður kikkur útur þessu!!! en já svona er þetta bara, geri þetta þá á mánudaginn og ég ætla að vera búin að æfa það þúsund sinnum heima en vonandi fæ eg að halda hann þá .... , en allavegana þá hefur maður gott af þessu, It would makes me stronger og þetta er eh sem maður þarf bara að gera ef maður ætlar að halda áfram í skóla !!! en allavegana þá er ég að fara að syngja á tónleikum í kvöld og mér finnst það miklu minna mál, hlakka bara til, en smá stress samt:) en vá hvað er lítið eftir af skólanum, þessi önn er búin að líða alltof hratt, en ég get ekki beðið eftir að komast í jólafrí , elska jólin... besti tími ársins:) er svo mikið jólabarn. Hlakka svo til að skreyta og sona:D:D ætla að taka fleiri vaktir um jólin, safna pening:P
well ég er hætt að röfla og er farin að éta stresstöflur, bæbæ snúlles:*
31. október 2006 klukkan 23:07
okay vá hvað ég er ekki heppin í umferðinni , hvernig er hægt að lenda tvisvar í tjóni á sömu vikunni??? okay ég er algjör snillingur, í fyrra skipti olli ég tjóninui semsagt í órétti , lennti á eikkerjum blindum bletti og svo í seinna skipti var gjörsamlega bara bakkað á mig , það var eins og ég væri ósýnileg... en djísus þetta er ekki það skemmtilegasta en þetta hefði getað farið verr. Er þetta er bara óheppni og getur komið fyrir besta fólk eða kann ég bara ekkert að keyra hmmm.. það er stóra spurngingin hehe kannski ætti ég bara ekkert að keyra á götum bæjarins:/ en jam svo kom eitt annað mjög skemmtilegt fyrir mig.. en vá þetta er soldið týbískt ég ... okay bílinn var bensínslaus og bensínljósið komið og ég var sko á bílnum sem mamma og pabbi eiga en skiptir ekki og ég og Tinna náttúrlega alltaf svo svangar og æstar í mat og höldum bara að bíllinn verður ekkert bensínlaus þannig við keyrum og fáum okkur að borða á pítunni sem er nokkuð langt í burtu og svo þegar ég er buin að skutla henni og á leiðinni heim mjög stutt frá mér stoppar bíllinn og ekki á skemmtilegasta stað og akkurat geðveik umferð þegar þetta gerist og fólk horfir á mann eins og maður hafi framið stóran glæp , hvað er málið ...vá hvað fólk er tillitslaust eða sumt fólk, en ókay bróðir minn reddaði semsagt bensíni fyrir 500 kall en neinei þegar ég ætla að fara að starta bílnum þá er hann líka rafmagnslaus og engin sem gat reddað mér startkapplaþannig löggan þurfti að koma og redda mér... vá hvað mér leið illa og ég var drullu pirruð á að vera þarna í meira en klukkutíma eins og algjör FÁVITI, en eins og ég segi þá getur þetta komið fyrir besta fólk og ég er bara dúlla :) hehehe... en allavegana þá ætla ég bara að taka bensín strax því það er ömurlegt að lenda í þessu ...
en lífið er yndislegt og maður á að fara varlega og ég elska ykkur munið það okayyy?? ;)
Margrét
http://www.b2.is/?sida=tengill&id=122419 ha ha þetta er svo steikt
27. október 2006 klukkan 19:01
ég vildi að snjórinn væri kominn, ég skil ekkert í mér... í gærkveldi byrjaði ég allt í einu í þessu svakalega jólaskapi og er búin að vera með jólalög á heilanum síðan

úr snjó í annað : Ég er að fara til Ljubljana í Slóvaníu á fimmtudaginn með Einari, við komum reyndar aftur á sunnudeginum þannig að þetta verður bara stutt ferð. Við ætlum að reyna að verlsa einhverjar jólagjafir, fara í skoðunarferðir og slaka svoldið vel á. Erla Talía verður bara í pössun hjá ömmunum á meðan.
Já... og ég verð eiginlega að hætta núna því við erum að flytja í dag svo ég þarf að fara að pakka niður 
Peas out SS
26. október 2006 klukkan 19:01
jæja þá held ég að það sé nu kominn tími á eitt blogg frá mér, hef bara verið minnst dugleg við þetta það er bara búið að vera frekar mikið að gera hjá mér æjj maður hefur nú samt alltaf smá tíma til að blogga en málið er að ég veit aldrei hvað ég að segja:/
en það er eitt sem ég vil koma útur mér
ÞAÐ VERÐUR DJAMMAÐ UM
HELGINA:) hell yeahh!!!

lofa að skrifa meira næst:)
Margrét